Koki kveður: „You are my family!“

Josip Vekic og Kostadin Petrov. Myndir: Þórir Tryggva
Josip Vekic og Kostadin Petrov. Myndir: Þórir Tryggva

Fyrr í dag samþykkti handknattleiksdeild Þórs félagsskipti Kokí Petrov til HC Alkaloid í heimalandi hans Norður-Makedoníu.

Kokí, eða Kostadin Petrov eins og hann heitir fullu nafni, var búinn að vera algjörlega frábær fyrir Þór í vetur og einnig er hann frábær persónuleiki. Kokí kveður lið Þórs vegna persónulegra ástæðna, en langveikur fjölskyldumeðlimur þarfnast nærveru hans meira en við í Þór akkúrat núna, við eigum þó eftir að koma til með sakna hans.

Koki bað um góðar kveðjur til allra í Þór og kvaddi með orðunum: „You are my family!“ Handknattleiksdeild Þórs óskar Kokí velfarnaðar í framtíðinni.

Eins og fram hefur komið rifti Þór samningi milli félagsins og Josip Vekic í byrjun árs og hefur hann leikið sinn síðasta leik fyrir Þór.

Það er ljóst að stórt skarð er hoggið í leikmannahópinn en fyrsti leikur liðsins í Grill 66 deildinni verður gegn toppliði HK eftir viku eða föstudaginn 3. febrúar kl. 19:30.