U17 kvenna í beinni í dag

Angela Mary Helgadóttir og Krista Dís Kristinsdóttir eru með U17 landsliðinu í Algarve í Portúgal.
Angela Mary Helgadóttir og Krista Dís Kristinsdóttir eru með U17 landsliðinu í Algarve í Portúgal.

Leikur U17 landsliða Íslands og Portúgals á æfingamóti í Algarve í Portúgal verður í beinni á KSÍ TV kl. 17 í dag.

Tvær úr Þór/KA eru með U17 landsliðinu í Portúgal, þær Angela Mary Helgadóttir og Krista Dís Kristinsdóttir. Allir leikir liðsins verða í beinni á í sjónvarpi KSÍ á netinu.

Leikjadagskráin:

2. febrúar kl. 17: Portúgal - Ísland
5. febrúar kl. 14: Ísland - Slóvakía
7. febrúar kl. 17: Ísland - Finnland