Þýskur leikmaður til Þórs

Tuba Poyraz, væntanlegur leikmaður kvennaliðs Þórs í körfubolta. Mynd: Páll Jóhannesson.
Tuba Poyraz, væntanlegur leikmaður kvennaliðs Þórs í körfubolta. Mynd: Páll Jóhannesson.

Kvennalið Þórs í körfubolta hefur borist öflugur liðsauki en þar er um að ræða þýskan leikmann sem er fædd 2001 og verður 22ja ára á árinu.

Leikmaðurinn heitir Tuba Poyraz og er 181 cm á hæð. Hún hefur eingöngu spilað í heimalandinu í 1., 2. og 3. deild síðan hún var 15 ára.

Tuba er kominn til Akureyrar og vonast menn til að félagskiptin verði gengin í gegn þegar Þór sækir KR heim næstkomandi laugardag.

Bjóðum leikmanninn velkominn til Þórs.