Fróðleikur um Þórsmerkið

Einu sinni voru litir Þórsmerkisins svona... en það er löngu liðin tíð!
Einu sinni voru litir Þórsmerkisins svona... en það er löngu liðin tíð!

Fyrir tæpum tveimur árum kom út ný útgáfa Þórsmerkisins og hefur farið í það töluverð vinna (sem ekki sér fyrir endan á) að koma eldri útgáfum merkisins úr umferð.

Hinn almenni stuðningsmaður hefur sjálfsagt ekki gert sér grein fyrir þeim breytingum sem merkið hefur tekið undanfarin 20 ár eða svo. Fyrir utan auðvitað þær breytingar sem áttu sér stað fyrir þann tíma!

Hér að neðan eru tvær myndir. Önnur þeirra gerir tilraun til að útskýra þær breytingar sem voru gerðar á merkinu bæði nú síðast og svo fyrir um 12 árum.

Hin myndin sýnir nokkur merki sem eru í umferð en eiga ekkert skylt við Íþróttafélagið Þór.