Jólakúlan árið 2022 er mætt!

Þórs jólakúlan er skyldueign á heimili allra Þórsara og kúla ársins í ár er mætt í hús! Eins og flestir orðið vita gefur félagið út nýja kúlu árlega og er þetta fimmta kúlan í röðinni.

Þórs jólakúlan árið 2022 er í mött rauðum lit með hvítu Þórsmerki og stjörnum til skrauts í kring. Allur ágóði af sölu kúlunnar rennur í starfsemi félagsins.

Okkur er það sönn ánægja að kynna að sala á kúlunni í ár fer fram í gegnum nýja vefverslun félagsins sem finna má á forsíðu thorsport.is . En einnig er að sjálfsögðu hægt að koma í Hamar (félagsheimili Þórs) og kaupa kúluna. Ef upp koma einhver vandamál með pöntun í vefverslun þá má senda póst á jonsi@thorsport.is

Slóðin til að panta jólakúluna í ár er hér að neðan. Fljótlega munum við svo bæta jólakúlum fyrri ára við vefverslunina.

https://www.thorsport.is/is/moya/store/index/vorur/jolakulan-2022