Spilað er í sex karladeildum og einni kvennadeild, 64 keppendur skráðir til leiks. Keppni í deildum 4 og 5, ásamt kvennadeildinni, hefst í kvöld, en hinar þrjár fara af stað á fimmtudagskvöld.
Mikilvægar upplýsingar fyrir keppendur:
-
Deildarkeppnin hefst í vikunni!
-
Fyrsta umferð í Superliga, Superliga 1, Superliga 2 og Superliga 3 fer fram á fimmtudaginn. Húsið opnar kl 17:30 og hefja skal leik eigi síðar en kl 18:15. Aðstaðan er bókuð um kvöldið og því þurfa leikir að vera búnir fyrir kl 19:30!
-
Fyrsta umferð í Superliga 4, Superliga 5 og Superliga KVK fer fram annað kvöld (miðvikudagskvöld). Húsið opnar kl 19:00!
-
Veitt verða verðlaun fyrir efstu tvö sætin í hverri deild!
-
-
Fyrsta umferðin verður nokkuð plönuð en eftir að fyrstu umferð er lokið er hægt að senda á mótherjann og mæla sér mót. Áætlað er að spila einn leik í viku og spila verður samkvæmt plani nema annað sé ákveðið í samráði við mótsstjóra (mótsstjóri er Markús Darri Jónasson).
-
Tvö stig eru fyrir sigur og eitt stig fyrir jafntefli
-
Spilaðar verða 17 umferðir (51 píla) og svo búll ef leikur klárast ekki.
-
Búllað er upp á hver byrjar, coin toss upp á hvor byrjar að búlla.
-
Ef eitthvað er óljóst er hægt að senda á mótsstjóra deildarinnar (Markús, Davíð og Viðar).
Hér eru svo myndir frá píludeildinni sem sýna skiptingu keppenda í deildirnar. Áhugavert að sjá hve margir núverandi og fyrrverandi meistaraflokksleikmenn í handbolta, körfubolta og fótbolta eru komnir yfir í pílukastið.