Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Lið frá rafíþróttadeild Þórs er komið í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil í Rocket League-tölvuleiknum eftir sigur á Breiðabliki í undanúrslitum í dag, 4-3.
Rocket Leauge er bílafótboltaleikur, en upplýsingar um hann og keppnina má finna á vef RLÍS. Liðsmenn Þórs eru Daníel Ingi Hjaltalín, Stefán Máni Unnarsson, Elvar Christensen og Elliot Webb. Úrslitaleikurinn verður í beinni á Twitch-rás mótsins: https://www.twitch.tv/rocketleagueiceland/.
Þórsarar mæta annaðhvort Lava eða Breiðabliki í úrslitaviðureigninni, en hún hefst kl. 15 á morgun, sunnudaginn 14. maí.