Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Upplýsingar um æfingagjöld, greiðsla æfingagjalda og skráning iðkenda fer fram í gegnum Sportabler. Sjá leiðbeiningar hér neðar!
Smelltu hér til að fara beint á svæði handboltans á Sportabler. Athugið að Sportabler opnast í nýjum vafraglugga.
Leiðbeiningar:
Foreldrar/forráðamenn, munið að þegar þið greiðið æfingagjöld í fyrsta skipti í gegnum Sportabler þá eigið þið að nota ykkar nafn og kennitölu (ekki kennitölu barnsins) við innskráningu. Gott er að gera nýskráningu í fyrsta skiptið í gegnum tölvu en einnig er hægt að gera það í Sportabler appinu. Sjá myndina hér neðar.
Sportabler kóðar fyrir iðkendur eða auka aðstandendur til að skrá sig inn í sinn flokk í Sportabler appinu í síma eru hér neðar (ath til þess að iðkendur geti notað kóðann þarf að vera búið að ganga frá æfingagjaldinu áður).
Einnig er hægt að skrá sig inn í gegnum vafra á netinu á eftirfarandi slóð: https://www.sportabler.com/signup
Kóðar:
3.kk handbolti: PIQBJF
4.kk handbolti: 2WNQSC
5.kk handbolti: ZLM5ME
6.kk handbolti: YWV9B0
7.kk handbolti: 9V7S5Y
8.kk handbolti: 2YGUS3
Nokkrir hlutir sem gott er að hafa í huga þegar gengið er frá æfingagjöldum.
1. Hægt er að fá æfingagjöldunum skipt á greiðslukort (debit/kredit) í Sportabler. Kerfið býður ekki upp á greiðsluseðla.
2. Ef þið ætlið að skrá þrjú börn (innan deildar) í gegnum kerfið þarf fyrst að hafa samband við handbolti[at]thorsport.is til að réttur afsláttur komi á þriðja barn.
3. Tómstundarávísunin er nýtt með því að haka í "Frístundastyrk/tómstundarávísun Akureyrarbæjar" á síðunni þar sem greiðslufyrirkomulag er ákveðið. Í kerfinu kemur einnig fram við innskráningu hve mikið er hægt að nýta af ávísuninni (ef t.d. hluti hennar hefur verið nýttur annarstaðar).
4. Ef þið lendið í vandræðum þá er hægt að hafa samband við unglingaráð handknattleiksdeildar á netfanginu: handbolti[at]thorsport.is