Aðalfundur rafíþróttadeildar 26. apríl kl. 16

Stjórn rafíþróttadeildar Þórs boðar til aðalfundar deildarinnar miðvikudaginn 26. apríl kl. 16:00 í austursalnum í Hamri.

Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Félagar rafíþróttadeildar eru hvattir til að mæta og taka þátt í störfum deildarinnar.

Í lögum Íþróttafélagsins Þórs, grein 7C, segir, um dagskrá aðalfundar deilda:

  • Dagskrá aðalfundar deilda skal vera þannig:
    1. Skipaður fundarstjóri og fundarritari.
    2. Skýrsla formanns.
    3. Skýrsla gjaldkera, ársreikningur lagður fram.
    4. Starfsemi unglingaráðs.
    5. Kosningar.
    6. Önnur mál.