Tap í úrslitaleik Rocket Leegue

Þórsarar biðu lægri hlut gegn liði Breiðabliks í úrslitaviðureign Íslandsmótsins í Rocket League í dag.

Þórsarar höfðu sigrað Suðurtak og LAVA Esports í útsláttarkeppninni. Blikar höfðu áður orðið deildarmeistarar, en liðin mættust í undanúrslitum í efri hluta úrslitakeppninnar. Þar höfðu Þórsarar sigur, en fyrirkomulagið er þannig að þá fóru Blikar í neðri hluta útsláttarkeppninnar og mættu liði LAVA í undanúrslitum og unnu. Þór mætti því Breiðabliki bæði í undanúrslitum og í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn. Blikar höfðu betur þar, 4-1. Þórsarar standa því uppi með silfurverðlaun og geta ef til vill vel við unað því Breiðablik var með öflugt lið sem hafði spilað vel í vetur og vann deildina.

Úrslitaleikurinn var í beinni á Twitch-rás mótsins, en upphitun fyrir leikinn hefst á 1:06:30 áður en viðureignin sjálf hefst.