Þór mætir Atlantic í úrslitaviðureign Stórmeistaramótsins í kvöld

Þórsarar mæta liði Atlantic í úrslitaviðureign Stórmeistaramótsins.
Þórsarar mæta liði Atlantic í úrslitaviðureign Stórmeistaramótsins.

Stórmeistaramótið í tölvuleiknum Counter Strike hefur staðið yfir undanfarna daga, fyrst með undankeppni og svo úrslitakeppni og eru okkar menn komnir í úrslitaleikinn. 

Þórsarar unnu TEN5ION í fjórðungsúrslitum, 2-1, og svo FH 2-0 í undanúrslitunum. Þeir mæta liði Atlantic í úrslitaviðureigninni sem hefst kl. 19 í kvöld. Viðureignin er í beinni á Stöð 2 esport og á Twitch-rás Rafíþróttasamtaka Íslands.

Hér má lesa frétt á Vísi um viðureignina í kvöld.

Hér má lesa frétt á Vísi um viðureign Þórs og FH í undanúrslitunum

Facebook-síða Rafíþróttasamtaka Íslands.
Twitch-rás Rafíþróttasamtaka Íslands - þar sem viðureignin verður í beinni.