Elmar Freyr heldur titlinum!

Þórsarinn Elmar Freyr Aðalheiðarson mætti Magnúsi Kolbirni Eiríkssyni frá Hnefaleikafélagi Kópavogs á Íslandsmótinu í hnefaleikum nú um helgina og var það einróma ákvörðun dómara að hann hefði sigur í lok leiktíma. Elmar Freyr ver því titilinn sem hann vann í fyrra og hans bíða stærri verkefni í framtíðinni. Við óskum meistaranum til hamingju með titilinn.