Minnum á greiðslu árgjaldsins

Ágætu félagar! Árgjald Íþróttafélagsins Þórs - eða félagsgjaldið eins og það er einnig nefnt - var á eindaga 15. desember. 

Félagið þakkar öllum þeim sem þegar hafa greitt, en betur má ef duga skal.

Það skiptir félagið okkar gríðarlega miklu máli að félagsgjaldið sé greitt. Það er margt í bígerð á nýju ári, til dæmis er verið að vinna í merkingum í Hamri og Íþróttahöllinni þar sem við ætlum að setja upp myndir og slagorð úr starfinu okkar. 

Gefum félaginu okkar þetta í jólagjöf.

Reimar Helgason frkvstj.