Síldarævintýri Sævars – safnar fyrir hnefaleikadeildina

Hnefaleikakonan unga og efnilega, Valgerður Telma Einarsdóttir, var dregin inn í síldarævintýrið hjá…
Hnefaleikakonan unga og efnilega, Valgerður Telma Einarsdóttir, var dregin inn í síldarævintýrið hjá Sævari. Skjáskot úr myndbandi.

Sævar Rúnarsson, formaður hnefaleikadeildar Þórs, hnýtir ekki bagga sína alltaf sömu hnútum og allur almenningur. Annað árið í röð er hann kominn af stað í síldarævintýri þar sem markmiðið er að fá fólk til að styrkja hnefaleikadeildina fjárhagslega.

Það er auðvelt að hrífast með Sævari í þessu verkefni og einfalt að láta eitthvað af hendi rakna:

  • Reikningur: 0565-14-1917
  • Kennitala: 5606160310

 

Það er sennilega best að hafa ekki fleiri orð um verkefnið heldur vísa bara á myndböndin sem Sævar birtir á Facebook-síðu hnefaleikadeildarinnar.