Kató skrifar undir sinn fyrsta samning

Kristófer Kató Friðriksson hefur undirritað leikmannasamning við knattspyrnudeild Þórs.

Samningurinn er til þriggja ára og er fyrsti samningur Kató en þessi 15 ára gamli miðjumaður, sem verður 16 ára í júlí, hefur verið að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki í vetur og vor.

Hann var til að mynda í byrjunarliði Þórs í úrslitaleik Kjarnafæðimótsins í vetur og lék sinn fyrsta KSÍ leik fyrir meistaraflokk í 1-4 sigri á Selfossi í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Kató er fjölhæfur miðjumaður og spilar einnig reglulega í öftustu línu en hann hefur leikið sex yngri landsleiki fyrir Ísland, þrjá með U15 og þrjá með U16.

Við óskum Kató til hamingju með fyrsta samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum.