Pollamót Þórs og Skógarbaðanna – Langstærsta mótið frá upphafi

Pollamót Þórs í körfuknattleik fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri 2. og 3. október. Aldrei hafa fleiri lið att kappi á mótinu (39) og að sama skapi hafa keppendur aldrei verið fleiri (355). Mótið heppnaðist frábærlega í alla staði og uppselt var á fyrsta lokahófið í Sjallanum (300) sem var án nokkurs vafa það best heppnaða til þessa. Lengi verður gott betra!

Keppendur sýndu að þeir hafa fáu gleymt inni á vellinum og nýir þátttakendur komu inn með glæsibrag og mikla gleði. Maður er manns gaman og svo er körfubolti skemmtileg íþrótt þar sem allir geta fundið fjöl sína. Þá er fátt skemmtilegra en að hitta gamla félaga úr boltanum og eignast nýja. Það setti einnig mjög skemmtilegan svip á mótið að Draumaliðið inn í Pæjudeildina í ár en allir leikmenn liðsins hafa spilað fyrir kvennalandslið Íslands í körfuknattleik. Þá bættist við slatti af nýjum liðum í öllum flokkum og virkilega gaman að sjá mótið vaxa og dafna.

Þegar upp var staðið var það lið Dagsbrúnar sem varð hlutskarpast í Pæjudeildinni (20 ára og eldri konur) eftir framlengdan leik við Draumaliðið. Grjóti Juniors stóðu uppi sem sigurvegarar eftir harða keppni við Only Hsuman í Polladeildinni (25 til 39 ára karla). Loks unnu Berry and the Pace-makers Lávarðadeildina (karlar 40 ára og eldri) eftir að hafa borið sigurorð af UBK í skemmtilegum úrslitaleik. Flottustu búningana á mótinu áttu Trodd’essu og bestu tilþrif mótsins áttu Snæfellsgellur og Fleiri Snæfellsgellur fyrir skemmtilega dansrútínu.

Lokahófið í Sjallanum sem heppnaðist sem fyrr segir frábærlega. Tónlistarmaðurinn Rúnar Eff veislustýrði eins og kóngur og tók nokkra hressa slagara eins og honum einum er lagið. Snæbjörn H. Kristjánsson og hans fólk bauð upp á dýrindis matarveislu. Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, sló í gegn sem og á létta strengi og veitti viðurkenningar og verðlaun með dyggri aðstoð Pollans, merkisbera Pollamóts Þórs og Skógarbaðanna. Nablinn stýrði einnig uppboði á áritaðri Jeremy Pargo Grindavíkurtreyju, en Pargo er heitasti körfuknattleiksmaður landsins eftir að hafa leitt UMFG til sigur í úrslitaviðureigninni í vor. Rappdúettinn Úlfur Úlfur keyrði svo stuðið upp í tíu með nokkrum af sínum helstu lögum og á Sjallaballinu undir lokin leiddu Úlfur Úlfur og Kristmundur Axel saman hesta sína og kláruðu kvöldið með stæl. Óhætt er að segja að gestir hafi skemmt sér vel fram á rauða nótt.

Sérstaklega skemmtilegt var þegar gestir klöppuðu sérstaklega fyrir Eiríki Sigurðssyni, sem var viðstaddur lokahófið ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Guðlaugsdóttur, en Eiki Sig og bróðir hans Jói Sigu léku lykilhlutverk við að koma öldungamótum í körfuknattleik á fót á Akureyri í kringum um síðustu aldamót.

Skipuleggjendur Pollamóts Þórs í körfuknattleik þakka öllum keppendum fyrir þátttökuna og vonast til að sjá alla aftur að ári og enn fleiri til. Næsta Pollamót Þórs í körfuknattleik verður haldið 1. og 2. október 2027. Ef fram heldur sem horfir með fjölgun liða og keppenda mun mótið hefjast fyrir hádegi á föstudeginum.

Mótsnefnd þakkar innilega þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg við mótið og sér í lagi þeim sem lögðu á sig gríðarlega mikla vinnu til þess að láta allt ganga upp. Það koma margar hendur að því að láta svona stórt mót ganga upp. Án ykkar er ekkert mót. Kærar þakkir!!!

Mótsnefnd þakkar einnig styrktaraðilum fyrir þeirra mikilvæga framlag (Skógarböðin, Coca Cola, Acro, Volcanic Drinks, Kjarnafæði Norðlenska, Myllan og Akureyrarbæ).

Guðjón Andri Gylfason, formaður KKD Þórs, Helgi Heiðar Jóhannesson og Stór-Þórsarinn Páll Jóhannesson, tóku fullt af myndum á mótinu eins og sjá má með því að smella meðfylgjandi hlekki.

Myndir frá Andra: https://bokhladan.client-gallery.com/gallery/pollamot-thors-og-skogarbadana-26

Myndir frá Helga: https://photos.app.goo.gl/Yr2dCjgVsDmPtCLR8

Myndir frá Palla: https://www.thorsport.is/is/moya/gallery/index/index/_/pollamot-thors-og-skogarbadanna-2026

Sjáumst á næsta ári á Pollamóti Þórs í körfuknattleik! Áfram körfubolti!

Körfuboltakveðja, mótsnefnd (Doddi, Eiður, Gummi, Kári, Raggi og Stefán Þór).