Körfubolti: Leikur Þórs og Fjölnis færður á sunnudag

Þór tekur á móti Fjölni í 1. deild karla í körfubolta sunnudaginn 28. janúar kl. 18:15. Vakin er athygli á breyttum leikdegi, en leikurinn átti upphaflega að vera í kvöld, föstudagskvöld, en var færður yfir á sunnudag vegna mótahalds í Höllinni.

Fjölnir er í 3. sæti deildarinnar, en liðið hefur unnið 11 leiki af 13 hingað til í deildinni. Þór er í 8. sæti deildarinnar með fimm sigra í 13 leikjum. Fyrri leikur liðanna í haust var jafn og spennandi, en Fjölnismenn unnu með sex stiga mun.

  • Mót: 1. deild karla
  • Leikur: Þór - Fjölnir
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Sunnudagur 28. janúar
  • Tími: 18:15
  • Streymi: Þór TV