Körfubolti: Stelpurnar okkar fara í Laugardalshöllina

Þórsliðið ásamt þjálfurum og aðstoðarfólki fyrir leikinn gegn Stjörnunni í kvöld. Mynd: Páll Jóhanne…
Þórsliðið ásamt þjálfurum og aðstoðarfólki fyrir leikinn gegn Stjörnunni í kvöld. Mynd: Páll Jóhannesson.

Þór vann Stjörnuna í átta liða úrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta í kvöld og tryggði sér sæti í undanúrslitum keppninnar.

Stórkostlegur fyrri hálfleikur skilaði okkar konum 19 stiga forskoti sem gestirnir náðu svo reyndar að éta næstum upp til agna með góðum áhlaupum í upphafi seinni hálfleiks og aftur í upphafi fjórða leikhluta. Þegar munurinn var kominn niður í tvö stig sögðu Þórsarar hingað og ekki lengra! 

Þórsarar tóku frumkvæðið strax í upphafi, en gestirnir jöfnuðu. Þá kom góður kafli sem skilaði 11 stiga forskoti, en munurinn níu stig að loknum fyrsta fjórðungi. Annar leikhlutinn var frábær og forystan mest orðin 22 stig. Með frábæran stuðning frá yfir 200 manns í stúkunni var eins og ekkert gæti stöðvað okkar konur og munurinn 19 stig þegar gengið var til búningsklefa að loknum fyrri hálfleiknum.

Stjörnukonur komu mjög ákveðnar til leiks í seinni hálfleiknum og byrjuðu að éta upp forskotið. Á um það bil sex mínútum var forskot Þórsara komið niður í níu stig, en smá kippur í lok þriðja leikhluta skilaði aftur 11 stiga forystu. Aftur kom áhlaup frá gestunum í upphafi fjórða leikhluta og hlaupin mikil spenna í leikinn. Þegar tæpar átta mínútur voru eftir af leiknum var forystan nær horfin, munurinn aðeins tvö stig. Þá komu tveir þristar frá Hrefnu Ottósdóttur sem kveiktu í húsinu. Smátt og smátt hertu okkar konur takið á farseðlinum í Laugardalshöllina, juku forskotið aftur upp í 13 stig og héldu haus og kláruðu leikinn af öryggi. Maddie fékk sína fjórðu villu þegar stutt var eftir af þriðja leikhluta, en það kom ekki að sök þegar upp var staðið.


Hulda Ósk Bergsteinsdóttir var frábær í kvöld, sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Hún var með 72% skotnýtingu, skoraði 23 stig. Mynd: Páll Jóhannesson. 

Lore Devos og Hulda Ósk Bergsteinsdóttir voru frábærar í kvöld. Lore með 30 stig og 14 fráköst, Hulda Ósk með 23 stig og 72% skotnýtingu, Hrefna Ottósdóttir setti niður fimm þrista, þar af tvo á mjög mikilvægum augnablikum þegar munurinn var orðin óþægilega lítill. Maddie Sutton skoraði ekki mikið, en var öflug í öðrum þáttum, hirti 15 fráköst, svo dæmi sé tekið. Liðsheildin og baráttuandinn þó allra best eins og jafnan áður hjá þessu liði. Hópurinn allur á hrós skilið þó hér séu nokkrar teknar út úr með hátt skor og mörg fráköst.


Lore Devos skoraði 30 stig og tók 14 fráköst í leiknum. Mynd: Páll Jóhannesson.

Þór - Stjarnan (22-13) (25-15) 47-28 (20-27) (20-22) 87-77

Stig/fráköst/stoðsendingar

Þór: Lore Devos 30/14/8, Hulda Ósk Bergsteinsdóttir 23/6/1, Hrefna Ottósdóttir 15/4/1, Jovanka Ljubetic 6/2/2, Maddie Sutton 5/15/4, Heiða Hlín Björnsdóttir 5/1/1, Eva Wium Elíasdóttir 3/3/5, Emma Karólína Snæbjarnardóttir 0/1/0, Rebekka Hólm Halldórsdóttir 0/0/1.

Stjarnan: Kolbrún María Ármannsdóttir 26/5/0, Ísold Sævarsdóttir 19/5/4, Katarzyna Trzeciak 10/2/1, Bára Björk Óladóttir 9/0/1, Denia Davis-Stewart 8/11/1, Bo Guðmundsdóttir-Frost 5/0/0, Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir 0/6/0, Elísabet Ólafsdóttir 0/1/0.

Á myndinni má sjá helstu tölur úr leiknum. Smellið á myndina til að skoða ítarlega tölfræði. Eins og sést voru okkar konur öflugar í frákastabaráttunni, tóku 19 fleiri fráköst en gestirnir. Maddie og Lore tóku rúman helming frákasta Þórsliðsins. Skotnýting Þórsara var nokkuð betri, en gestunum gekk á köflum afleitlega að hitta ofan í körfuna í fyrri hálfleiknum.m

Hvað þýðir sigurinn?

Sigur í átta liða úrslitum VÍS-bikarsins þýðir einfaldlega það að Þór er á leið í undanúrslit keppninnar sem fram fara í Laugardalshöllinni um miðjan mars. Grindvíkingar tryggðu sér sæti í undanúrslitum með sigri á Val í dag, en á morgun mætast Njarðvík og Hamar annars vegar og Haukar og Keflavík hins vegar. 

En nú snúa okkar konur sér aftur að deildarkeppninni því það er leikur strax á þriðjudag þegar Grindvíkingar mæta norður. Fram undan er lokaspretturinn í öðrum hluta deildarkeppninnar þar sem það ræðst hvaða fimm lið mætast í efri hlutanum og hvaða fjögur í neðri hlutanum. Vonandi gefur sigurinn á Stjörnunni í dag okkar konum byr undir báða vængi því Haukar gera nú atlögu að 5. sætinu þar sem Þór situr núna.

  • Mót: Subway-deild kvenna
  • Leikur: Þór - Grindavík
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Þriðjudagur 23. janúar
  • Tími: 18:15