Körfubolti: Tap í Vesturbænum

Jason Gigliotti í baráttu við leikmann KR í fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri í haust. Mynd…
Jason Gigliotti í baráttu við leikmann KR í fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri í haust. Mynd: Páll Jóhannesson.

Þórsarar sóttu ekki gull í greipar KR-inga þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfubolta í gær. Vesturbæingar unnu öruggan 20 stiga sigur.

KR-ingar náðu tíu stiga forskoti um miðjan fyrsta leikhluta og létu forystuna aldrei af hendi, munurinn orðinn 19 stig þegar fyrri hálfleiknum lauk. Seinni hálfleikur var jafnari, en Þórsarar náðu þó aldrei að nálgast heimamenn og munurinn að lokum 20 stig. Jason Gigliotti var eins og oft áður öflugastur Þórsara, skoraði 21 stig og tók 16 fráköst. 

KR - Þór (28-20) (24-13) 52-33 (22-18) (23-26) 97-77

Stig/fráköst/stoðsendingar

Jason Gigliotti 21/16/2, Smári Jónsson 17/4/5, Reynir Róbertsson 14/6/1, Baldur Örn Jóhannesson 11/9/3, Michael Walcott 7/2/1, Harrison Butler 4/9/1, Hákon Hilmir Arnarsson 3/2/0, Páll Nóel Hjálmarsson 0/3/1.

Næst

  • Mót: 1. deild karla
  • Leikur: Þór - Fjölnir
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Föstudagur 26. janúar
  • Tími: 19:15
  •