Körfubolti: Þór fær Snæfell í heimsókn í kvöld

Fyrsti heimaleikur karlaliðs Þórs í körfuknattleik á árinu 2024 verður í kvöld þegar strákarnir taka á móti liði Snæfells úr Stykkishólmi.

Þessi lið mættust í fyrstu umferð 1. deildar karla í haust og má segja að Þórsarar hafi verið klaufar að missa þann leik niður. Þeir höfðu góð tök á leiknum, en Snæfell náði að kreista fram þriggja stiga sigur í lokin. Snæfell vermir botnsæti deildarinnar með tvo sigra, jafn marga og Ármann, Hrunamenn og Selfyssingar, en þar fyrir ofan eru Þórsarar með fjóra sigra í 11 leikjum. 

Leikurinn hefst kl. 19:15 og að venju hægt að næla sér í glóðheitan borgara af grillinu til að njóta yfir leiknum. 

Fyrir þau sem ekki komast verður hægt að horfa á streymi á Þór TV: