Körfubolti: Þór tekur á móti Fjölni í kvöld

Þór tekur á móti liði Fjölnis í B-hluta Subway-deildar kvenna í körfubolta í Höllinni í kvöld kl. 19:15.

Leikurinn er í 2. umferð B-hluta deildarinnar. Þór vann Snæfell á útivelli í fyrsta leiknum og er í efsta sæti B-hlutans með átta sigra, en Valskonur koma á hæla þeirra með sjö sigra. Hver leikur getur því skipt sköpum í baráttunni um sætin í neðri hlutanum, en þrjú af þessum fjórum liðum fara í úrslitakeppnina gegn liðunum í þremur efstu sætum A-hlutans.

Þór og Fjölnir hafa mæst tvisvar í Subway-deildinni í vetur. Fjölniskonur höfðu betur á sínum heimavelli í upphafi móts, 70-62, en okkar konur svöruðu því með tíu stiga sigri í Höllinni í byrjun desember, 85-75. 

  • Deild: Subway-deild kvenna, B-hluti
  • Leikur: Þór - Fjölnir
  • Staður: Höllin á Akureyri
  • Dagur: Þriðjudagur 13. febrúar
  • Tími: 19:15