Körfubolti: Þórsarar sækja Selfyssinga heim

Þórsarar mæta Selfyssingum á útivelli í 15. umferð 1. deildar karla á morgun, laugardag - athugið breyttan leikdag.

Fyrir leikinn eru Þórsarar í 8. sæti deildarinnar, hafa unnið fimm leiki af 14, en Selfyssingar eru sæti neðar með þrjá sigra í jafnmörgum leikjum. Þessi lið mættust í lok október í fyrri umferð mótsins og höfðu Þórsarar þá betur, unnu með 13 stiga mun, 93-80. 

  • Mót: 1. deild karla
  • Leikur: Selfoss - Þór
  • Staður: Vallaskóli á Selfossi
  • Dagur: Laugardagur 3. febrúar 
  • Tími: 17:00