Körfubolti: Þórsarar taka á móti Skagamönnum í kvöld

Þór og ÍA mætast í 18. umferð 1. deildar karla í Höllinni í kvöld kl. 19:15.

Fyrir leikinn í kvöld eru Þórsarar í 8. sæti með sex sigra, en ÍA í 7. sæti með átta sigra. Þar fyrir ofan er Þróttur í Vogum með átta sigra, eins og ÍA. Fimm umferðir eru eftir af deildarkeppninni og því enn möguleiki fyrir Þórsara að hækka sig örlítið í töflunni með góðu gengi á lokasprettinum.

Fyrri leik liðanna í vetur lauk með fjögurra stiga sigri ÍA á Skaganum, 85-81. Það er því full ástæða til bjartsýni um gengi liðsins í kvöld, sérstaklega ef stuðningsfólk mætir vel og lætur í sér heyra.

Næst

  • Mót: 1. deild karla
  • Leikur: Þór - ÍA
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Föstudagur 23. febrúar
  • Tími: 19:15