Körfubolti: Útileikur hjá karlaliði Þórs

Þórsarar fara á Suðurlandið í dag og mæta liði Hrunamanna í 17. umferð 1. deildar karla í körfubolta á Flúðum kl. 19:15.

Fyrir umferð dagsins eru Þórsarar í 8. sæti deildarinnar, hafa unnið fimm leiki. Fyrir ofan Þórsara eru þrjú lið með átta sigra og fara því að verða seinustu forvöð fyrir okkar menn að hækka sig í töflunni, núna þegar sex umferðir eru eftir af deildarkeppninni áður en úrslitakeppni hefst. Hrunamenn eru í næstneðsta sæti deildarinnar, hafa unnið þrjá leiki. 

Þórsarar unnu öruggan sigur í fyrri leik sínum gegn Hrunamönnum sem fram fór á Akureyri, 105-83. Hrunamenn unnu Selfyssinga í síðustu umferð eftir nokkra tapleiki í röð, en Þórsarar hafa núna tapað fjórum síðustu leikjum sínum. 

  • Mót: 1. deild karla
  • Leikur: Hrunamenn - Þór
  • Staður: Flúðir
  • Dagur: Föstudagur 16. febrúar
  • Tími: 19:15