Tíu leikmenn endursemja

Tíu leikmenn hafa nú endurnýjað samninga í karla- og kvennaliði Þórs í körfubolta. 

Í júní mánuði endurnýjuðu tíu leikmenn samninga sína við karla- og kvennalið Þórs í körfubolta. Í karlaliði voru þeir Andri Már, Bergur Ingi, Páll Nóel, Róbert Orri og Smári Jónsson sem undirrituðu samninga og í kvennaliði voru það Eva Wium, Karen Lind, Heiða Hlín, Kristín María og Rut Herner sem gera sig klárar í slaginn, ásamt Maddie Sutton sem skrifaði undir hjá Þór fyrr í júní.

Hér fyrir neðan má sjá leikmenn handsala málin með formanni Körfuknattleiksdeildar Þórs, Hjálmari Pálssyni.