Við áramót - dagskrá verðlaunahátíðar

Aðalstjórn Þórs býður leikmönnum, starfsfólki, félagsfólki og velunnurum að mæta í Hamar á morgun, föstudaginn 6. janúar, þar sem kjöri íþróttafólks Þórs 2022 verður lýst.

Eins og áður hefur komið fram verður hin hefðbundna þrettándagleði ekki haldin í ár. Þess í stað stendur félagið fyrir verðlaunahátíðinni Við áramót þar sem okkar besta fólk verður heiðrað. Þá má einnig nefna að í þetta skipti verða ekki veitt nein heiðursmerki (gull, silfur, brons) þar sem endurnýjun stendur yfir í orðunefnd og verið er að endurskoða verklag við veitingu heiðursmerkja. Liður í því er að nú er hægt að senda inn ábendingar um heiðursmerki í gegnum valmyndina hér á forsíðu thorsport.is. Sjá nánar um það í eldri frétt.

Við áramót verður í Hamri föstudaginn 6. janúar og hefst kl. 17.

Dagskrá (gæti breyst)

  • Þóra Pétursdóttir, formaður Þórs, setur samkomuna
  • Íslandsmeistarar og landsliðsfólk heiðrað
  • Látinna félaga minnst, Sigfús Helgason
  • Íþróttafólk deilda Þórs kynnt og heiðrað
  • Kjöri á íþróttafólki Þórs lýst
  • Léttar veitingar


Félagið hvetur Íslandsmeistara og landsliðsfólk til að mæta á athöfnina, sem og alla iðkendur, félagsfólk og velunnara. Þrjú lið og tveir einstaklingar frá Þór og Þór/KA unnu Íslandsmeistaratitla á árinu, einn í hnefaleikum, einn í pílukasti og þrjú lið í fótboltanum. 

  • Elmar Freyr Aðalheiðarson – hnefaleikar (einnig bikarmeistari)
  • Óskar Jónasson – pílukast, 301, einmenningur
  • 3. flokkur kvenna, Þór/KA – knattspyrna – samtals 29 leikmenn (einnig bikarmeistarar)
  • 4. flokkur karla, Þór – knattspyrna – samtals 18 leikmenn
  • 5. flokkur karla, B-lið, Þór – knattspyrna – samtals 10 leikmenn


Við eigum einnig landsliðsfólk í yngri landsliðum í handbolta, fótbolta og körfubolta, samtals er það 21 leikmaður, einn í handbolta, tvær í körfubolta og 18 leikmenn í fótbolta.

Hér má sjá nafnalista yfir Íslandsmeistara og landsliðsfólk - pdf-skjal.