Afrakstur Kvennakvöldsins afhentur liðunum fjórum

Í leikhléi í leik Þórs/KA og Breiðabliks í Boganum á mánudag mætti kvennakvöldsnefndin og afhenti aðildarliðum kvöldsins styrk að upphæð 1,5 milljónir á hvert liðanna fjögurra.

Að Kvennakvöldinu standa kvennaliðin fjögur í boltaíþróttunum, Þór/KA, handknattleikslið KA/Þórs, körfuknattleikslið Þórs og blaklið KA. Nefndarkonur Kvennakvöldsins mættu í Bogann á mánudag og afhentu fulltrúum þessara liða afraksturinn af kvöldinu sem haldið var í byrjun maí. Öllum sem að Kvennakvöldinu komu eru hér með færðar bestu þakkir fyrir stuðninginn. Hann er ómetanlegur.

Í ávarpi frá nefndinni segir meðal annars. „Við þetta tilefni vill Kvennakvöldsnefndin þakka öllum þeim sem koma að kvöldinu, styrktaraðilum, sjálfboðaliðum og öllum þeim frábæru konum sem mættu á viðburðinn, fyrir að gera þetta kvöld ógleymanlegt og að styrkja allar þessar frábæru íþróttakonur sem skipa þessi lið.“

Frá afhendingu styrksins. Frá vinstri: Steinþór Traustason, blakdeild KA, Klara Fanney Stefánsdóttir, handboltalið KA/Þórs, Ólafur Torfason, körfuknattleiksdeild Þórs, Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA og nefndarkonurnar Linda Guðmundsdóttir, Eva Björk Halldórsdóttir, Linda Rakel Jónsdóttir, Bryndís Ríkharðsdóttir og Elma Eysteinsdóttir. Mynd: Ármann Hinrik.

Kvennakvöldsnefndin er þannig skipuð:

  • Eva Björk Halldórsdóttir
  • Elma Eysteinsdóttir
  • Þóra Pétursdóttir
  • Linda Rakel Jónsdóttir
  • Bryndís Ríkharðsdóttir
  • Linda Guðmundsdóttir