Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Þórs fer fram í Hamri kl. 18:00, miðvikudaginn 3.júní næstkomandi.
Um er að ræða framhaldsfund í kjölfar aðalfundar þann 26.apríl síðastliðinn. Fór fundurinn vel fram samkvæmt dagskrá. Þegar komið var að kosningum og búið að staðfesta stjórn unglingaráðs körfuknattleiksdeildar varð ljóst að ekki myndi takast að mynda stjórn meistaraflokks.
Guðjón Andri Gylfason formaður körfuknattleiksdeildar lagði til að þessum lið yrði frestað; bar fundarstjóri það upp við fundargesti og var það samþykkt. Nú er komið að því og hvetjum við alla körfuboltaunnendur að fjölmenna.