Þór áfram í Bestu deildinni - Flestir uppaldir

Þór tryggði sér áframhaldandi veru með glæsilegum 1-2 sigri á FH í lokaumferð Bestu deildarinnar í fótbolta.

Leikið var á Þróttarvelli þar sem Kaplakrikavöllur var ekki í leikhæfu ástandi vegna frosts. FH-ingar komust yfir snemma leiks en okkar menn voru fljótir að snúa leiknum sér í vil með tveimur mörkum frá Þorra Ingólfssyni.

Þór lauk keppni með 30 stig úr 27 leikjum og hafnaði í 10 sæti deildarinnar. KA og ÍBV féllu úr deildinni.

Þór á toppnum yfir flestar mínútur uppalinna leikmanna

Þór var það lið sem var með langhæst hlutfall leikmínútna uppalinna leikmanna í deildinni, þ.e. leikmenn sem fóru upp í gegnum barna- og unglingastarf Þórs. Alls tóku 30 leikmenn þátt á tímabilinu og af þeim var 21 uppalinn Þórsari.

Að auki voru fjórir leikmenn úr yngri flokka starfi Þórs sem léku með öðrum liðum í Bestu deildinni á tímabilinu.

Efsta röð frá vinstri - Stefán Ingi Jóhannsson, sjúkraþjálfari, Birgir Ómar Hlynsson, Peter Ingi Helgason Jones, Christian Jakobsen, Ragnar Óli Ragnarsson, Atli Sigurjónsson, Fannar Daði Malmquist Gíslason, Sigfús Fannar Gunnarsson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson
Miðröð frá vinstri - Halldór Mar Einarsson, liðsstjóri, Yann Emmanuel Affi, Victor Bertomeu, Aron Ingi Magnússon, Ágúst Eðvald Hlynsson, Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari, Eiður Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfari, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Haraldur Ágúst Brynjarsson, Smári Signar Viðarsson, Vilhelm Ottó Biering Ottósson, Arnar Geir Halldórsson, aðstoðarþjálfari.
Neðsta röð frá vinstri - Þorri Ingólfsson, Kevin Vazquez, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Lucas Vieira Thomas, Aron Birkir Stefánsson, fyrirliði, Franko Lalic, Kristófer Kristjánsson, Sverrir Páll Ingason, Kristófer Kató Friðriksson, Hermann Helgi Rúnarsson

Mynd - Skapti Hallgrímsson