Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
2.flokkur Þórs tekur þátt í Evrópukeppni unglingaliða (UEFA Youth League) í fyrsta sinn í sögunni í ár.
Um er að ræða keppni allra sterkustu unglingaliða álfunnar og unnu okkar drengir sér þátttökurétt í keppninni með því að verða Íslandsmeistarar 2025.
Dregið var í fyrstu umferðir keppninnar í höfuðstöðvum UEFA á dögunum og þar dróst Þór gegn litháísku U19 meisturunum í FK Zalgiris.
Fyrri leikur liðanna fer fram á VÍS-vellinum miðvikudaginn 16.september næstkomandi og verður flautað til leiks klukkan 16:00.
Liðin mætast svo aftur ytra, í Vilnius í Litháen þann 14.október næstkomandi.
