Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Lög Íþróttafélagsins Þór.
Tillögur að lagabreytingum á aðalfundi 2026
1. Tillaga.
3. grein Allir sem æfa íþróttir innan deilda félagsins gerast sjálfkrafa félagar í viðkomandi deild og jafnframt félaginu. Aðrir sem vilja gerast félagar sæki um það á þar til gerðum eyðublöðum og þurfa þeir að hljóta samþykki aðalstjórnar. Við greiðslu árgjalds öðlast viðkomandi fulla félagsaðild í Þór.
Allir sem æfa íþróttir innan deilda félagsins gerast sjálfkrafa félagar í viðkomandi deild og jafnframt félaginu. Stjórn deildar getur neitað einstaklingi um að æfa og þar með að verða félagi í viðkomandi deild telji hún ástæðu til. Ákvörðun stjórnar skal send aðalstjórn til kynningar.
Aðrir sem vilja gerast félagar sæki um það á þar til gerðum eyðublöðum og þurfa þeir að hljóta samþykki aðalstjórnar. Við greiðslu árgjalds öðlast viðkomandi fulla félagsaðild í Þór.
2. Tillaga.
9. grein
· A) Reikningsár félagsins er frá 1. janúar til 31. desember. Aðalfundur skal haldinn fyrir 1. maí ár hvert og telst hann lögmætur sé hann auglýstur opinberlega með minnst fjórtán daga fyrirvara. Á aðalfundi skal formaður gefa greinargóða skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári. Einnig skal leggja fram ársreikning félagsins, yfirfarinn og áritaðan af endurskoðendum, til samþykktar. Áritaður ársreikningur skal liggja frammi á skrifstofu félagsins til skoðunar fyrir félagsmenn frá þeim tíma er auglýsing um aðalfund birtist.
· B) Aðalstjórn félagsins er skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fimm meðstjórnendum. Formaður aðalstjórnar skal kosinn sérstaklega. Allir stjórnarmenn eru kosnir til eins árs í senn. Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund.
B) Aðalstjórn félagsins er skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og þremur eða fimm meðstjórnendum. Formaður aðalstjórnar skal kosinn sérstaklega. Allir stjórnarmenn eru kosnir til eins árs í senn. Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund.
3. Tillaga.
9. grein
· A) Reikningsár félagsins er frá 1. janúar til 31. desember. Aðalfundur skal haldinn fyrir 1. maí ár hvert og telst hann lögmætur sé hann auglýstur opinberlega með minnst fjórtán daga fyrirvara. Á aðalfundi skal formaður gefa greinargóða skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári. Einnig skal leggja fram ársreikning félagsins, yfirfarinn og áritaðan af endurskoðendum, til samþykktar. Áritaður ársreikningur skal liggja frammi á skrifstofu félagsins til skoðunar fyrir félagsmenn frá þeim tíma er auglýsing um aðalfund birtist.
· B) Aðalstjórn félagsins er skipuð formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og fimm meðstjórnendum. Formaður aðalstjórnar skal kosinn sérstaklega. Allir stjórnarmenn eru kosnir til eins árs í senn. Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund.
Framboð til aðalstjórnar þarf að tilkynna stjórn félagsins skemmst átta dögum fyrir aðalfund. Aðalstjórn skal kynna á heimasíðu og/eða miðlum félagsins framboð til aðalstjórnar 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund.
4. Tillaga.
16. grein Verði einhver félagi sekur um afbrot sem stjórnin telur félaginu eða íþróttahreyfingunni til vanvirðingar, þá getur hún vikið honum úr félaginu eða gripið til annarra viðeigandi ráðstafana.
Verði einhver félagi sekur um háttsemi eða afbrot sem stjórnin telur félaginu eða íþróttahreyfingunni til vanvirðingar, þá getur hún vikið honum úr félaginu eða gripið til annarra viðeigandi ráðstafana.