Katla endursemur við Þór

Í dag endurnýjaði Katla María Magdalena Sæmundsdóttir samning sinn við Þór til eins árs og leikur með liðinu í 1. deild kvenna á komandi tímabili.

Katla María, sem uppalin er hjá Vestri, lék með liðinu á síðasta tímabili og skilaði góðu framlagi þrátt fyrir meiðsli. Hún kemur til með að styrkja hópinn gríðarlega fyrir komandi átök í 1. deild kvenna en hún bætist í hóp frábærra leikmanna sem hafa þegar endurnýjað samning sinn við Þór ásamt Maddie Sutton sem skrifaði einnig undir í sumar. 

Við bjóðum Kötlu hjartanlega velkomna heim í Þorpið!