Handbolti: Rútuferð á oddaleikinn

Þór og Fjölnir mætast í oddaleik úrslitaeinvígis um sæti í Olísdeildinni í handbolta á morgun, fimmtudaginn 2. maí. Leikurinn fer fram í Grafarvoginum og Þórsarar splæsa í rútuferð til Reykjavíkur. 

Brottför verður frá Hamri kl. 12:00. Farmiðasala í Stubbi. Sætið kostar 2.000 krónur. Leikurinn hefst kl. 18:30.