Átta Þórsarar í landsliðsverkefnum KKÍ í sumar

Hrefna Ottósdóttir í bikarleiknum gegn Stjörnunni í vetur. Hún hefur nú verið valin í æfingahóp A-la…
Hrefna Ottósdóttir í bikarleiknum gegn Stjörnunni í vetur. Hún hefur nú verið valin í æfingahóp A-landsliðsins í fyrsta skipti. Mynd: Páll Jóhannesson.

Átta Þórsarar verða í verkefnum með yngri landsliðunum í körfubolta í sumar og fara á alþjóðleg mót, Norðurlandamót og Evrópumót.

KKÍ hefur gefið út leikmannahópa yngri landsliða fyrir mót sumarsins. Þórsarar eiga sex fulltrúa í þessum hópum. Um er að ræða leikmenn liða U15, U16, U18 drengja og stúlkna auk U20 karla og kvenna.

  • U15 fer á eitt alþjóðlegt mót í byrjun ágúst
  • U16-U18-U20 lið fara á NM og svo FIBA EM mót í sumar.

Í U15 landsliði drengja eigum við tvo fulltrúa, þá Bergvin Inga Magnússon og Pétur Nikulás Cariglia. Emma Karólína Snæbjarnardóttir mun leika með U16 stúlkna og í U20 landsliðum eigum við þau Rebekku Hólm Halldórsdóttur, Evu Wium Elíasdóttur og Reynir Bjarkan Róbertsson.

Eva Wium var einnig valin í æfingahóp A-landsliðs ásamt Hrefnu Ottósdóttur. Eva Wium fór með landsliðinu til Svíþjóðar síðasta sumar í tvo æfingaleiki en þetta er fyrsta A-landsliðsval Hrefnu en hún lék með U15, U16 og U20 landsliðum Íslands. 

Við óskum okkar fólki innilega til hamingju með árangurinn og óskum þeim góðs gengis í verkefnum sumarsins!