Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Unglingaráð Þórs ásamt unglingráði KA héldu fyrsta Íslandsmót vetrarins í handbolta á Akureyri um nýliðna helgi. Sprettsmótið var haldið fyrir iðkendur í 6.flokki, á eldra ári bæði karla og kvenna. Spilað var á 3 stöðum, Nautaskóla, Síðuskóla og KA heimilinu, ásamt því að gist var í 2 skólum. Svona mót er mikilvæg tekjulind fyrir handboltafélögin á Akureyri. Samtals voru Akureyrarliðin með 9 lið skráð til leiks og enduðu 2 lið þar á að vinna sínar deildir.
Svona mót er ekki hægt að halda án hjálpar frá sjálfboðaliðum við hinar ýmsu vaktir. Gæslu,- matar,- þrifavaktir ásamt ritara og dómgæslu.
Unglingaráð Þórs og KA handboltans senda kærar þakkir til þeirra sem aðstoðuðu okkur um helgina.