Tarojae Brake í Þór

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við bandarískan leikstjórnanda, Tarojae Brake um að leika með liðinu í 1. deild karla næsta tímabil.

Tarojae er 25 ára gamall og 190 centímetra hár. Á síðasta tímabili lék hann í TBL deild í Bandaríkjunum þar sem hann skilaði 16.7 stigum í leik, um 4 stoðsendingum og 6 fráköstum. Tímabilið sem framundan er verður því hans annað tímabil í atvinnumennsku eftir háskóla en tímabilið 2020-2021 lék Tarojae með Saint Peter's háskólanum í MAAC riðli í efstu deild háskóladeildarinnar. 

 

Við bjóðum Tarojae Brake hjartanlega velkominn í Þór!