Fjölmennasta beltapróf síðari ára

Síðastliðinn föstudag þreyttu 24 nemendur Þórs og Völsungs beltapróf fyrir 10.–2. gráðu hjá Taekwondodeild Þórs undir stjórn kwanjangním Sigursteins Snorrasonar, en um er að ræða fjölmennasta próf deildarinnar á síðari árum.

Nemendur stóðu sig afar vel og hafa tekið miklum framförum á liðnum vetri. Í deildinni er að finna fjölmarga efnilega iðkendur og verður áhugavert að fylgjast með áframhaldandi uppbyggingu og framgangi deildarinnar á komandi árum.