Kappróðrabátur “Þórs”

Viðskiptabók nr -454- við Sparisjóð Akureyrar.

“Sjóð þennan gaf Axel Kristjánsson kaupmaður Íþróttafélaginu Þór í afmælishófi þess í febrúar 1935”.

Smá fróðleikur um Axel Kristjánsson kaupmann og heiðursfélaga Þórs.

Axel Kristjánsson er einn fjölmargra heiðursfélaga í Þór og jafnframt sá fyrsti eftir því, sem best er vitað. Trúlega var hann gerður að heiðursfélaga einhvern tímann á bilinu 1919-1928. Nafn Axels kemur fyrst fyrir í bókum Þórs árið 1919 þá, sem þjálfari glímuflokks félagsins. Axel átti eftir að koma mikið við sögu hjá félaginu enda mikils metin maður og mikill unnandi íþrótta. Hann var m.a. þjálfari glímuflokks Þórs, knattspyrnu- og sunddómari og sterkur bakhjarl félagsins. Axel var virtur kaupmaður á Akureyri, hann var fyrsti formaður Íþróttaráðs Akureyrar 1928. Bæjarfulltrúi og Norskur Konsúll. Axel lést árið 1942 aðeins 49 ára gamall.

Axel Kristjánsson heiðursfélagi Þórs lést af völdum flugslys. Sá hörmulegi atburður varð 14. apríl 1942 þegar flugvélin „Smyrill“ hrapaði til jarðar rétt fyrir utan Reykjavík, en vélin var á leið til Akureyrar. Af þeim fjórum farþegum, sem í vélinni voru og slösuðust alvarlega, var einn Akureyringur, Axel Kristjánsson heiðursfélagi í Þór. Tveimur dögum síðar lést Axel af sárum sínum á bresku sjúkrahúsi í Reykjavík. Axel var aðeins 49 ára gamall þegar hann lést.

Axel borinn til grafar. Laugardaginn 2. maí var Axel Kristjánsson lagður til sinnar hinstu hvílu að viðstöddu miklu fjölmenni. Íþróttamenn mættu undir fána og báru kistuna frá heimili að kirkju. Axel var mikils metinn maður og mikill unnandi íþrótta auk þess, sem hann var virtur kaupmaður og var m.a. fyrsti formaður íþróttaráðs Akureyrar þegar það var stofnað 1928. Axel sat í íþróttaráðinu allt til andláts. Axel fæddist á Sauðárkróki 1892 fluttist til Akureyrar 1920 en áður hafði hann verið við nám í Gagnfræðaskóla Akureyrar og allt frá þeim tíma nutu Þórsarar þess að hafa hann í liði en umfram allt studdi hann íþróttir í hvívetna. Axel var Norskur konsúll á Akureyri frá 1937. Þá var hann einnig í bæjarstjórn 1938-1942.