Olísdeildin að hefjast - Leikmannakynning í Hamri

Þór heimsækir Fram í 1.umferð Olísdeildarinnar í handbolta næstkomandi laugardag, 5.september.

Því er komið að leikmannakynningunni og kótilettukvöldinu hjá handknattleiksdeild Þórs á fimmtudagskvöld í Hamri.

Framundan er gríðarlega spennandi vetur í Olísdeildinni og við viljum kynna ykkur fyrir okkar frábæru leikmönnum og þjálfurum.

Skráðu þig sem fyrst og tryggðu þér sæti á þetta skemmtilega kvöld.

Skráning hér