Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Stærsta pílumót Íslands fer fram helgina 10. -11. apríl þegar Akureyri Open 2026 verður haldið í Sjallanum.
Þetta verður í þriðja skiptið sem Akureyri Open verður haldið í Sjallanum. Frábær stemning hefur myndast fyrir mótinu enda er öllu til tjaldað þessa helgi í Sjallanum. Fjöldi keppenda verður 224; 192 karlar og 32 konur. Það er ljóst að eftirspurn eftir þátttöku í mótið verður gríðarleg og því hvetjum við þá aðila sem hafa áhuga á að taka þátt að vera tilbúin að skrá sig. Til upplýsinga þá fylltist í mótið á fimm mínútum í fyrra!
Skráning hefst sunnudaginn 1. febrúar kl 12:00 á Facebook síðu píludeildar Þórs.
Mótið í ár verður hið glæsilegasta líkt og síðustu ár. Frægasti dómari og kallari í pílukasti, Russ Bray, verður á staðnum og mun sjá um að kalla úrslitakvöldið. Honum til halds og traust verður John McDonald. Þeir tveir hafa verið á stóra sviðinu í pílukasti til fjölda ára og því frábærar fréttir að fá þá aftur í SjallyPally!
Þetta er eitthvað sem enginn á að láta framhjá sér fara! Þátttökugjaldið í mótið er 12.500kr. Almenn miðasala á úrslitakvöldið verður auglýst þegar nær dregur. Þátttakendur hafa forgang í miðakaupum á úrslitakvöldið.
Keppni hefst föstudaginn 10. apríl kl 14:00 en keppt verður í riðlum og svo útslætti. Á laugardag hefst svo útsláttur kl 10:00. Á laugardagskvöldið verður Sjallanum breytt í SjallyPally og stemningin sett í fimmta gír. Átta manna úrslit hjá körlum, undanúrslit hjá körlum og úrslitaleikir karla og kvenna verða á stóra sviðinu. Það verður ljósashow, inngöngulög, fjöldinn allur af myndavélum, risaskjáir sem sýna frá leikjunum í salnum ásamt fleiri skemmtilegum nýjungum frá fyrra ári. Mótinu verður svo streymt fyrir þá sem komast ekki í stemninguna.
Verðmæti vinninga verður vel yfir 2.500.000.- ISK og því til mikils að vinna! Hér er slóð á viðburðinn á Facebook
Fyrir áhugasama er hægt að sjá hápunkta frá mótinu í fyrra hér, en mótinu var streymt á Youtube í samstarfi við LiveDartsIceland.
Sjáumst í Sjallanum 10.- 11. apríl!

Mattías Örn (píludeild Þórs) tapaði í úrslitaleik 2024 og 2025 í SjallyPally.
Hann mætir til leiks og ætlar sér að ná í sigur!

Stemningin á SjallyPally er engu lík!