Smári og Kató boðaðir á landsliðsæfingar

Ómar Ingi Guðmundsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp sem æfir dagana 9.-11. febrúar.

Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ.

Í hópnum er Þórsarinn Kristófer Kató Friðriksson. Smelltu hér til að skoða hópinn í heild sinni.

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur valið hóp sem æfir dagana 16.-18. febrúar.

Æfingarnar fara fram í Miðgarði.

Í hópnum er Þórsarinn Smári Signar Viðarsson. Smelltu hér til að skoða hópinn í heild sinni.

Óskum okkar drengjum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.