Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Fimmtudaginn 5. febrúar, fór fram afhending á styrkjum Norðurorku til samfélagsverkefna vegna ársins 2026. Athöfnin fór fram í Menningarhúsinu Hofi, sem er vel við hæfi þar sem Norðurorka er bakhjarl Menningarfélagsins.
Í nóvember 2025 auglýsti Norðurorka eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna fyrir árið 2026 og rann umsóknarfrestur út síðar sama mánuð. Fram kom að veittir væru styrkir til menningar- og lista, íþrótta- og æskulýðsstarfs og góðgerðarmála. Markmið með styrkjunum er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.
Sjá nánar á vef Norðurorku.
Meðal þeirra sem hlutu styrk voru unglingaráð knattspyrnudeildar Þórs, unglingaráð handknattleiksdeildar Þórs og Taekwondo deild Þórs og fyrir þeirra hönd færum við Norðurorku hér með bestu þakkir fyrir.
Styrkurinn verður nýttur til kaupa á æfingabúnaði hjá yngri flokkum Þórs í fótbolta. Til að bjóða upp á rútuakstur á æfingar í handboltanum. Til kaupa á brynjum og hjálmum fyrir Taekwondo. Í starfi unglingaráða er styrkur á borð við þennan afar mikilvægur til að geta haldið úti öflugu starfi.

