Tryggvi Snær og félagar Evrópumeistarar annað árið í röð

Mynd - Bilbao Basket
Mynd - Bilbao Basket

Þórsarinn Tryggvi Snær Hlinason fór fyrir liði sínu, spænska úrvalsdeildarliðinu Bilbao Basket, þegar liðið vann Evrópubikar FIBA annað árið í röð.

Tryggvi og félagar mættu PAOK frá Grikklandi í tveggja leikja úrslitaeinvígi og höfðu tapað útileiknum með sex stiga mun. Þeir unnu þann mun hins vegar upp á heimavelli í kvöld og fögnuðu 89-74 sigri, og unnu einvígið því samtals 162-153.

Tryggvi er fyrirliði spænska liðsins og var í lykilhlutverki í úrslitaleiknum; skoraði níu stig, tók sjö fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Var hann þar með framlagshæsti leikmaður síns liðs.

Við óskum Tryggva og félögum til hamingju með árangurinn!