Daniel Birkelund nýr þjálfari Þórs í handbolta

Daniel Birkelund tekur við þjálfun handboltaliðs Þórs.
 
Í dag undirritaði Daniel tveggja ára samning við handknattleiksdeild Þórs en hann gengur til liðs við okkur frá danska félaginu Lemvig.
 
Daniel er Norðmaður sem hefur þjálfað á hæsta stigi um víða Evrópu undanfarin ár og erum við gríðarlega spenntir að hefja störf með honum.
 
Hann kemur í 100% starf hjá okkur í Þór þar sem hann verður þjálfari meistaraflokks ásamt því að móta stefnu yngri flokka og ýta undir enn meiri uppbyggingu
 
Við bjóðum Daniel hjartanlega velkominn í Þorpið.