Handbolt: KA/Þór mætir Haukum í Hafnarfirði

Barátta KA/Þórs fyrir lífi sínu í Olísdeildinni heldur áfram í dag þegar þær fara í Hafnarfjörðinn og mæta Haukum. 

Liðin hafa mæst tvisvar í vetur. Haukar unnu í Hafnarfirðinum í byrjun okatóber, 26-20, og aftur hér fyrir norðan 19-32. Haukar eru í 3. sæti deildarinnar með 26 stig, en KA/Þór enn á botninum með fimm stig. Bæði lið hafa leikið 17 leiki, eiga bæði inni frestaða leiki gegn ÍBV, og eiga því fimm leiki eftir. 

Næst

  • Mót: Olísdeild kvenna
  • Leikur: Haukar - KA/Þór
  • Staður: Ásvellir
  • Dagur: Laugardagur 24. febrúar
  • Tími: 15:00
  • Útsending: Handboltarás Sjónvarps Símans