Handbolti: Annar leikur í einvígi Þórs og Harðar í kvöld

Nú reynir á Þórsfjölskylduna því ekkert annað en sigur kemur til greina í kvöld þegar karlalið Þórs tekur á móti Herði frá Ísafirði í úrslitakeppni Grill 66 deildar karla í handbolta. Góð mæting og öflugur stuðningur úr stúkunni geta skipt sköpum í kvöld.

Hörður vann fyrsta leik einvígisins á Ísafirði á þriðjudagskvöldið með þriggja marka mun. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram í úrslitaeinvígi við Fjölni um það hvort liðið fylgir ÍR-ingum upp í Olísdeildina fyrir næsta tímabil. Vinni Þórsarar ekki í kvöld eru þeir einfaldlega komnir í sumarfrí, tímabilinu lokið. Með sigri geta Þórsarar tryggt sér oddaleik á Ísafirði mánudaginn 15. apríl. 

Að venju verður grillið funheitt fyrir leik og í leikhléi verður boðið upp á sláarskotsáskorun. Nú ríður á að stuðningsfólk fjölmenni og láti vel í sér heyra, hvetji strákana til sigurs.