Handbolti: Einvígi Þórs og Harðar hefst í kvöld

Undanúrslit í umspili Grill 66 deildar karla í handbolta um laust sæti í Olísdeildinni á næsta tímabili hefjast í kvöld með leik Þórs og Harðar, sem fram fer á Ísafirði. Leikurinn hefst kl. 19:30.

Þór vann fyrri leik liðanna í deildinni í vetur, 33-25, þegar liðin mættust á Akureyri í október, en Hörður vann fimm marka sigur, 29-24, þegar liðin mættust á Ísafirði í febrúar. Hörður endaði sæti ofar en Þór í deildarkeppninni og á því heimaleik í kvöld, en liðin mætast á Akureyri föstudaginn 12. apríl. Vinna þarf tvo leiki til að fara áfram í úrslitaeinvígi við Fjölni. Ef þörf verður á þriðja leik verður hann á Ísafirði mánudaginn 15. apríl kl. 19:30.