Handbolti: KA/Þór mætir Fram kl. 13 í dag

KA/Þór tekur á móti liði Fram í 14. umferð Olísdeildar kvenna í handbolta. Athygli er vakin á breyttum leiktíma.

Leikurinn fer fram í KA-heimilinu og hefst kl. 13. Fram er í 3. sæti deildarinnar með 18 stig, en KA/Þór er í botnsætinu sem stendur, með fimm stig eins og Stjarnan.