Handbolti: KA/Þór tekur á móti Haukum í dag

KA/Þór mætir sterku liði Hauka í 12. umferð Olísdeildarinnar í handknattleik í dag.

Haukar eru í 2. sæti deildarinnar með 18 stig úr 11 leikjum, hafa aðeins tapað tveimur leikjum. KA/Þór seig niður í næstneðsta sæti deildarinnar eftir tap gegn Stjörnunni á útivelli í síðustu umferð. Liðin eru þó jöfn að stigum, en Stjarnan raðast sæti ofar. Fyrir neðan eru Afturelding með stigi minna.

 

  • Mót: Olísdeild kvenna
  • Leikur: KA/Þór - Haukar
  • Staður: KA-heimili
  • Dagur: Laugardagur 13. janúar
  • Tími: Kl. 15:30