Handbolti: KA/Þór tekur á móti ÍBV í dag - LEIK FRESTAÐ

LEIK FRESTAÐ!

KA/Þór tekur á móti liði ÍBV í KA-heimilinu í dag kl. 17:30. Vakin er athygli á breyttri tímasetningu. Leikurinn átti upphaflega að vera kl. 15, en var seinkað vegna mótahalds.

Eyjakonur eru í 4. sæti deildarinnar með 16 stig, hafa unnið átta leiki en tapað sex. KA/Þór er í harðri baráttu við Stjörnuna og Aftureldingu á botni deildarinnar. Afturelding hefur náð í sex stig, en Stjarnan og KA/Þór eru með fimm stig.

  • Mót: Olísdeild kvenna
  • Leikur: KA/Þór - ÍBV
  • Staður: KA-heimili
  • Dagur: Laugardagur 27. janúar
  • Tími: 17:30